Um okkur

Melo er lítið fjölskyldufyrirtæki sem varð til í fæðingarorlofi með stelpuna okkar. Okkur fannst vanta matarsett úr ryðfríu stáli á íslenskan markað og kviknaði því hugmyndin af Melo. Ári síðar er fyrsta varan loksins komin, diskur úr ryðfríu stáli og sílikoni með sogskálum. Okkar markmið er að bjóða upp á vörur úr vönduðum og endingargóðum efnum sem nýtast vel í daglegu amstri. Við vonumst til að geta aukið vöruúrvalið hægt og rólega og hlökkum til að taka ykkur með í þetta ferðalag! 

Algengar spurningar

Diskurinn hentar börnum frá 6 mánaða aldri.

Diskurinn er gerður úr 304 ryðfríu stáli og 100% matvælasílikoni.

Já. Diskurinn er laus við BPA, PVC og þalöt og uppfyllir LFGB staðal fyrir efni sem komast í snertingu við mat.

Já. Bæði stáldiskurinn og sílikonið mega fara í uppþvottavél. Við mælum með að taka sílikonið af stálhlutanum fyrir þvott svo vatn safnist ekki á milli.

Nei. Ryðfrítt stál er mjög endingargott og brotnar ekki sem gerir diskinn sérstaklega hentugan fyrir litlar hendur.

Nei. Þar sem diskurinn er úr ryðfríu stáli má hann ekki fara í örbylgjuofn.